Verkefnið er framhald af verkefni 2, nýtir það efni sem uppsett er í því, og fylgir þeirri verkefnalýsingu. Leyfilegt er að nota sýnilausn að verkefni 2 (sem gefin er út föstudaginn 10. september).
Nú skal bæta við einföldu útliti á efnið með CSS. Allt útlitið skal vera í ./styles.css
og allar HTML skrár skulu vísa í það.
Fyrirmynd að útliti er í fyrirmynd/
möppu. Öll skjáskot eru tekin í 1000px
breiðum Firefox vafra. Vídeó er tekið í 1000x600
Firefox vafra.
Gera má ráð fyrir að það verði að bæta við auka elementum við lausn/sýnilausn til að geta náð fram útliti.
Þar sem allt útlit skal útfæra í einni CSS skrá, skal huga að cascade og erfðum, þó er fullkomlega eðlilegt að endurtaka eigindi, en t.d. fyrir málsgreinar (<p>
) þarf aðeins að taka fram einu sinni hvert margin þeirra er.
Setja skal upp „reset“ þ.a. allt margin
og padding
frá vafra sé sett í 0
.
Allar málsgreinar skulu hafa eitt bil fyrir neðan sig.
CSS skal vera án villna og viðvarana þegar keyrt í gegnum CSS validator.
Allar síður skulu vera villulausar ef prófaðar með HTML validator.
Allar síður skulu vera án aðgengisvillna ef prófaðar með aXe, setjið upp viðbót í vafra.
Fyrirsögn og valmynd skulu vera föst í haus (sjá myndband) með hvítum bakgrunn og taka alla mögulega breidd.
Efni skal taka helming af breidd og vera miðjað, texti (og valmynd) skal vera miðjaður þar innan.
Passa þarf upp á að haus og valmynd fari ekki yfir efni, ekki þarf að finna nákvæma stærð, aðeins að það gildi í 1000px+
breiðum glugga.
Mynd og texti skulu taka um tvo þriðju af plássi, myndband skal vera hægra megin við og taka um þriðjung af plássi.
Allir hópar af gögnum skulu sitja hlið-við-hlið og taka um fjórðung af plássi.
Fyrir neðan þá skal „Senda umsókn“ takki vera.
Allir reitir skulu hafa eitt bil fyrir neðan sig. Þar sem nánari upplýsingar um reit eru skal það vera fyrir neðan reitinn.
Hver tafla skal taka helming af plássi, þ.a. tvær séu hlið-við-hlið. Bil skal vera milli raða af töflum.
Setja skal upp border á hvern reit í töflu.
Efni skal hafa fjórðung af bili innan hvers reit.
Draga skal efni inn um eitt bil frá vinstri.
Milli spurninga skal vera bil, border og annað bil.
- Leturstærð skal vera í grunninn (á
body
)16px
(eitt bil, ein eining) - Aðrar stærðir í fyrirmynd eru fjórðungur, hálft, heilt, eða tvöfalt margfeldi af grunnleturstærð
- Aðeins skal nota
px
í grunnleturstærð og breidd áborder
, annars skal nota hlutfallslegar einingar (em
,rem
, eða%
) - Border er alltaf
1px solid #000
Til að losna við merki á <ul>
lista þarf að setja list-style: none;
.
Til að losna við bil í töflu þarf að setja border-spacing: 0;
.
Aðeins skal nota eftirfarandi eigindi, og ef tekið fram, viðeigandi gildi:
background-color: #fff;
border
og nánari skilgreiningarborder-spacing: 0;
box-sizing
clear
display: block;
,display: inline;
, ogdisplay: inline-block;
content: '';
(hægt er að nota:after
til að útbúa block sem „hreinsar“float
)float
(notum þetta til að setja blockir hlið-við-hlið, en bara í þetta skipti!)font-size: 16px;
top
,right
,bottom
, ogleft
list-style: none;
margin
og nánari skilgreiningarpadding
og nánari skilgreiningarwidth
,min-width
, ogmax-width
position: fixed;
text-align: center;
Ekki þarf að huga að skalanleika (síðan þarf ekki að líta vel út í undir 1000px
skjá).
Setja skal síður upp á heimasvæði ykkar hjá HÍ undir möppu .public_html/vefforritun/verkefni3
svo verkefnið verði aðgengilegt á https://notendur.hi.is/<notendanafn>/vefforritun/verkefni3
þar sem <notendnafn>
er notendanafnið þitt (t.d. osk
).
- 20% – Snyrtilega uppsett og gilt CSS
- 20% – Aðeins leyfileg eigindi og gildi notuð
- 60% – Útlit skv. fyrirmynd
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 6. september 2021.
Skila skal í Canvas í seinasta lagi fyrir lok dags þriðjudaginn 14. fimmtudaginn 16. september 2021.
Skilaboð skulu innihalda:
- slóð á verkefni
- zip skjali með lausn
Hver dagur eftir skil dregur verkefni niður um 10%, allt að 20% ef skilað fimmtudaginn 16. september 2021 en þá lokar fyrir skil.
Leyfilegt er að ræða, og vinna saman að verkefni en skrifið ykkar eigin lausn. Ef tvær eða fleiri lausnir eru mjög líkar þarf að færa rök fyrir því, annars munu allir hlutaðeigandi hugsanlega fá 0 fyrir verkefnið.
Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 5% hvert, samtals 40% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 10%, samtals 20% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1